Norska kvikmyndin Tilfinningagildi hlaut Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Eða heitir hún það ekki? Í fréttum um verðlaunin á íslenskum fréttamiðlum er raunar ýmist talað um Affeksjonsverdi, norskt heiti kvikmyndarinnar, eða Sentimental Value, enskt (eða kannski alþjóðlegt?) heiti kvikmyndarinnar.
Einhvern tíma á undanförnum árum hafa kvikmyndahúsin meira og minna hætt að þýða titla á erlendum kvikmyndum á íslensku. Það er orðið ansi langt síðan það tíðkaðist að þýða á íslensku titla allra, eða a.m.k. langflestra, kvikmynda sem sýndar eru í kvikmyndahúsunum. En hverju sætir það að myndir frá Norðurlöndunum eru sýndar með enskum titli í íslenskum kvikmyndahúsum?
Sex kvikmyndir voru tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Fréttir um tilnefningarnar birtust á helstu vefmiðlum, mbl.is, visir.is og ruv.is. Á öllum miðlunum voru titlar myndanna birtir á frummálinu, ásamt enskum þýðingum þeirra. Á mbl.is var enskan á undan en á ruv.is var enskan höfð innan sviga. Engir íslenskir titlar eru birtir en þegar fréttirnar voru birtar höfðu reyndar engar af myndunum fyrir utan þá íslensku: Ástin sem eftir er (The Love That Remains) og Affeksjonsverdi (Sentimental Value) verið sýndar hér á landi.
Lausleg athugun bendir til að Íslendingar séu ekki einir um þessa þróun. Auglýsingar á vefsíðum sem sýna hvað er í bíó í höfuðborgum annarra Norðurlanda benda til þess að í Svíþjóð og Noregi sé málum háttað líkt og hér á landi en í Finnlandi og Danmörku virðast titlar kvikmynda oftast þýddir, a.m.k. þegar upprunalegir titlar eru ekki á ensku.
Hvenær hófst þessi þróun hér? Við munum mörg eftir því þegar íslensk kvikmyndahús auglýstu Á tæpasta vaði, Lömbin þagna og Truflaða tilveru. Auglýsingar kvikmyndahúsanna sýndu nánast undantekningarlaust íslenska titla á erlendum kvikmyndum allt frá því að fyrstu kvikmyndahúsin opnuðu á Íslandi í kringum aldamótin 1900 og fram á tíunda áratuginn. Um miðjan tíunda áratuginn voru farnir að sjást brestir: Þá voru flestar myndir með íslenskum titlum en undantekningarnar helst stórsmellir frá Hollywood á borð við Independence Day og Eraser, báðar geysivinsælar harðhausamyndir. Tíu árum síðar, í kringum 2005, var málum svo þveröfugt farið. Einu myndirnar sem höfðu íslenska titla voru íslenskar bíómyndir og kvikmyndir ætlaðar börnum. Myndir á ensku voru auglýstar með sínum upprunalegu titlum og myndir á öðrum tungumálum, sem þá voru reyndar sárafáar í kvikmyndahúsunum, einnig með enskum titlum, t.d. The Boss of it All (Direktøren for det hele) og The Lives of Others (Das Leben der Anderen).
Sjónvarpsstöðvarnar voru þó ekki alveg hættar að þýða titla. Í sjónvarpsauglýsingum Stöðvar tvö í Morgunblaðinu er almenna reglan sú að íslenskur titill er birtur á undan erlendum alveg fram til ársins 2013 og RÚV gerir það enn.
En hvað býr að baki þessum breytingum? Um það hefur talsvert verið skrifað, meðal annars í grein Aliu Moctar um bandarískar kvikmyndir í Frakklandi. Hún talar um að líta megi svo á að titillinn sé einhvers konar vörumerki sem gegnir lykilhlutverki í alþjóðlegri velgengni kvikmyndar. Það sé orðin regla að kvikmyndir sem eru á öðrum tungumálum en ensku taki sér einnig enskan titil sem notaður er á kvikmyndahátíðum og við sölu á kvikmyndunum um víða veröld. Einn alþjóðlegur titill einfaldar kynninguna á mörgum málsvæðum. Í grein Aliu er svo líka nefnt í þessu sambandi að kvikmyndir sem beint er að ungu fólki hafi oft einfaldari titla, sem lausir eru við flóknari orð eða orðasambönd sem þeir sem ekki tala málið gætu átt erfiðara með að skilja. Allt tengist þetta auðvitað markaðssetningu og í rannsókn Gao og félaga í rannsóknarriti um markaðsmál, sem finna má í heimildaskránni hérna fyrir neðan, er gerð grein fyrir rannsókn á tengslum titla á Hollywood-myndum þegar þær eru sýndar í Kína og vinsældum þeirra (mældum í miðasölutekjum). Niðurstöðurnar sýna að þeim mun meiri líkindi sem eru með enska titlinum og þeim kínverska, því fleiri fara til að sjá myndina í bíó og þeim mun meira af peningum kemur í kassann. Þetta á þó sérstaklega við um nýjar myndir en síður um sýningar á eldri kvikmyndum.
Íslenskir titlar eru margir eftirminnilegir þrátt fyrir að útlærðir markaðsmenn hafi kannski ekki alltaf valið þá með stuðningi ítarlegra rannsókna á tengslum titla og miðasölu. Á tímarit.is má finna a.m.k. 12 kvikmyndir sem sýndar voru með nafninu Hættulegur leikur, 10 notuðu titlana Einvígið og Upp á líf og dauða en a.m.k. 9 voru kallaðar Á elleftu stundu í íslenskum kvikmyndahúsum. Svo eru það kvikmyndirnar sem skiptu um titla. Dances with Wolves var fyrst kölluð Úlfadansar en svo tók sá titill sem þekktari er við, Dansar við úlfa; Con Air var sýnd með hressilegum titli til að byrja með, Flótti á fyrsta farrými, en síðar var öllu lakari titill notaður: Fangaflug. Big Daddy var fyrst Svalur pabbi en síðar Stóri pabbi og The Negotiator hét hvort tveggja á sama tíma, Samningamaðurinn og Rétt skal vera rétt.
| The World's Applause | 1925 |
| Liebesfeuer | 1927 |
| Her Game | 1928 |
| Kolibri | 1940 |
| The Other Love | 1949 |
| All This, and Heaven Too | 1950 |
| Orage | 1951 |
| Johnny Stool Pigeon | 1951 |
| La Castiglione | 1959 |
| She Played with Fire | 1962 |
| Deadly Game | 1987 |
| White Hunter, Black Heart | 1991 |
Kvikmyndir sem sýndar voru með íslenska titlinum Hættulegur leikur ásamt sýningarári.
Á auglýsingavefnum kvikmyndir.is í dag (föstudaginn 20. nóvember 2026) eru aðeins tvær kvikmyndir auglýstar með íslenskum titli. Önnur þeirra er teiknimynd fyrir börn og hin er alíslensk. Væri ekki svolítið skemmtilegra ef við gætum skellt okkur á Sól rís á sláttudegi, Hvernig ræna ber banka eða Köttinn með höttinn?
Heimildir
Norden.org. 2026. Handhafi kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. https://www.norden.org/is/nominee/handhafi-kvikmyndaverdlauna-nordurlandarads-2026
Alia Moctar. 2020. American Film Titles In French Distribution. The European Proceedings of Social and Behavioural Sciences.
„Hlynur tilnefndur í fjórða sinn“. mbl.is. 24. ágúst 2026.
„Ástin sem eftir er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs“. ruv.is. 24. ágúst 2026.
„Affeksjonsverdi hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs“. ruv.is. 20. október 2026.
„Jú, ég sá einhverja fræga“. visir.is. 17. mars 2026.
Gao, W., Ji, L., Liu, Y., & Sun, Q. (2020). Branding Cultural Products in International Markets: A Study of Hollywood Movies in China. Journal of Marketing, 84(3), 86-105.
Kvikmyndavefir á hinum Norðurlöndunum



