Icelandic Online – Börn er gagnvirkur kennsluvefur fyrir börn á leikskólaaldri og í yngstu bekkjum grunnskóla sem eru á fyrstu stigum lestrarnáms. Vefurinn styður nám í íslensku sem öðru máli sem og móðurmáli og er hannaður með það í huga að börn geti lært hvar og hvenær sem er, með eða án aðstoðar kennara eða foreldra, innan sem utan skólastofunnar.
Námsefnið er gert til að svara mikilli eftirspurn kennara og foreldra eftir aðgengilegu efni til annarsmálskennslu á Íslandi og til móðurmálskennslu íslenskra barna erlendis. Gjaldfrjálst aðgengi gerir efnið að hentugum kosti fyrir fjölskyldur og kennara víða um heim.
Á vefnum eru sjö námskeið sem innihalda samtals 332 gagnvirk verkefni með leikjaívafi. Fyrstu tvö námskeiðin leggja grunn að læsi með áherslu á bókstafi, hljóðkerfisvitund, myndun einfaldra orða og sjónorð. Í námskeiðum 3–7 færist áherslan yfir á lesfimi. Söguþráður textanna er áhugaverður. Þeir eru byggðir á einföldum stuttum setningum og þeim fylgja fjölbreytt verkefni í stigvaxandi þyngd.

Dæmi um æfingar í Icelandic Online – Börn á mismunandi þyngdarstigum. Í fyrri æfingunni, sem er í námskeiði 1, er fengist við bókstafina en í þeirri seinni, úr námskeiði 7, tengist viðfangsefnið skóla og tómstundum.
Vinir Ara
Nýlega komu út fyrstu tvær verkefnabækurnar í bókaröðinni Vinir Ara, sem eru sjálfstætt ítarefni við Icelandic Online – Börn. Bækurnar styðja við nám í íslensku sem öðru máli og móðurmáli með áherslu á lestur, skrift og uppbyggingu orðaforða.
Í bókunum eru sömu persónur og börnin þekkja af vefnum. Þar er að finna lestrar- og skriftaræfingar, þrautir og leiki sem styrkja orðaforða og málskilning. Bækurnar veita jafnframt tækifæri til þjálfunar sem ekki er hægt að sinna í stafrænu umhverfi, svo sem að draga til stafs og þjálfa skrift með hefðbundnum hætti.
Fyrstu tvær bækurnar hafa þegar verið gefnar út og stefnt er að útgáfu alls sjö bóka í stigvaxandi þyngd. Hver bók tengist einu námskeiði á kennsluvefnum og myndar þannig samfellda heild með stafræna námsefninu.

Dæmi um æfingar í fyrstu bókunum í flokknum Vinir Ara.
Hvatakerfi
Hvatakerfi er mikilvægur þáttur í námsefni fyrir börn. Á vefnum er stika sem sýnir framvindu og árangur. Þegar æfingu er lokið birtist ugla og lítill stefbútur heyrist og „úhú“ frá uglunni. Börnin safna ávöxtum sem þau fá fyrir að ljúka nokkrum verkefnum í röð og þegar hverju námskeiði lýkur hafa þau fyllt heila körfu af ávöxtum. Aðalpersóna verkefnisins, refurinn Ari, birtist einnig reglulega með hvatningarorð. Í bókunum eru sams konar verðlaun og á vefnum en þar eru þær í formi límmiða sem börnin geta notað til að merkja við þær æfingar sem þau hafa lokið við.
Bæði á vefnum og í bókunum er lögð áhersla á málnotkun sem tengist daglegu lífi barna, skólaumhverfi og tómstundum. Eftirminnilegar persónur og samfelldur söguþráður þar sem fjallað er um ævintýri þeirra eru nýtt til að vekja áhuga og viðhalda þátttöku nemenda.

Dæmi um hvatakerfi á kennsluvefnum. Á fyrri myndinni sést hversu mörgum ávöxtum hefur verið safnað í öllum sjö námskeiðunum. Á seinni myndinni sést uglan sem birtist þegar lokið hefur verið við æfingu.
Samþætt nálgun að íslenskunámi
Saman mynda kennsluvefurinn og verkefnabækurnar heildstætt námsefni sem býður upp á samþætta þjálfun í hlustun, lestri, skrift, málskilningi og orðaforða. Efnið er þróað í samræmi við aðalnámskrá leik- og grunnskóla og byggist á helstu rannsóknum og kenningum um máltöku, læsi og tungumálanám barna.
Sérstök áhersla er lögð á orðaforða sem tengist íslensku skólaumhverfi og námsgreinum, sem gerir efnið vel fallið til notkunar bæði sem viðbót við formlega kennslu og sem sjálfstætt nám eða afþreyingu utan skóla.

Hluti prófarateymis að störfum. Prófanir hjá fulltrúum markhópsins fóru reglulega fram á meðan gerð verkefnanna stóð.
Aðferðir og hönnun
Vefurinn byggist á námskeiðakerfi Icelandic Online sem er ætlað fullorðnum nemendum og hefur verið í þróun frá árinu 2004. Í ljósi þess að börn tileinka sér notkun stafræns námsefnis á annan hátt en fullorðnir var sérstök áhersla lögð á einfalt og aðgengilegt viðmót. Fyrirmæli og leiðbeiningar eru til staðar á vefnum en í hverri æfingu birtist ugla sem talar við börnin og segir þeim á mjög einfaldan hátt hvað á að gera í tilteknu verkefni. Hópur nemenda í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands kom að aðlögun kerfisins að þörfum ungra notenda.
Líkt og í fyrri námskeiðum verkefnisins Icelandic Online safnar kerfið tölfræðilegum upplýsingum um notkun og framvindu nemenda. Þær upplýsingar nýtast bæði til að fylgjast með nýtingu námsefnisins og til rannsókna á námshegðun og virkni nemenda. Síðast en ekki síst var mikil áhersla lögð á vandaðar myndskreytingar og aðlaðandi hönnun kennsluvefjarins og bókanna. Reyndur hönnuður var fenginn til verksins. Þeim sem vilja kynna sér nánar þróun og gerð vefjarins er bent á grein höfundar og Branislav Bédi frá 2024 þar sem vinnuferlinu er lýst á nákvæmari hátt.
Meðan á gerð kennsluvefjarins Icelandic Online – Börn og bókanna Vinir Ara stóð var námsefnið prófað reglulega af börnum í markhópnum, bæði eintyngdum og fjöltyngdum, á aldrinum 5–7 ára. Með þeim hætti var tryggt að það væri skýrt, áhugavert og aðgengilegt fyrir fjölbreyttan og kröfuharðan hóp notenda.
Höfundar og styrktaraðilar
Birna Arnbjörnsdóttir, Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir og Þorgerður Anna Björnsdóttir eru höfundar námsefnisins Icelandic Online – Börn ogVinir Ara. Bjarney Hinriksdóttir er útlits- og myndhöfundur. Fjölmargir aðrir komu að gerð kennsluvefjarins. Birna Arnbjörnsdóttir hefur verið verkefnisstjóri Icelandic Online verkefnanna frá upphafi.
Verkefnin hlutu stuðning frá eftirtöldum aðilum: Barnavinafélagið Sumargjöf, Íslenskusjóðurinn, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Styrktarsjóður Áslaugar Hafliðadóttur, Þróunarsjóður innflytjendamála og Þróunarsjóður námsgagna.
Heimildir
Birna Arnbjörnsdóttir, Bedi, B., og Kolbrún Friðriksdóttir. 2020. Icelandic Online: Twenty years of development, evaluation and expansion of an LMOOC. Í Frederiksen, Larsen, Bradley og Thouësny (ritstj.), CALL for widening participation: Short papers from EUROCALL 2020, bls. 13–19.
Branislav Bédi og Kelsey Paige Hopkins 2022. Kortlagning rafræns námsefnis í íslensku sem öðru máli fyrir börn og viðhorf fjölskyldna til notkunar á námsefni í sjálfsnámi barna. Milli mála 14/1: 253–283.
Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir og Branislav Bédi. 2024. Icelandic Online for children: Developing a web-based interactive course to enhance reading skills in L2 Icelandic for young learners. Í Bédi og Štvrtecká (ritstj.), Novel techniques and approaches in language teaching: Short papers from NoTALaT conference, bls. 187–194. Reykjavík: Rannsóknarstofa í máltileinkun.
Icelandic Online (e.d.).
Icelandic Online – Börn (e.d.).


