Við Hugvísindasvið Háskóla Íslands hefur íslenska sem annað mál verið kennd í yfir fjörutíu ár. Á þessum áratugum hefur námsbrautin vaxið úr því að vera aðeins í boði sem stök námskeið með nokkrum nemendum í þrjár ólíkar námsleiðir. Þetta breiða námsframboð tekur mið af þörfum fjölbreytts nemendahóps sem á það þó sameiginlegt að vilja bæta færni sína í íslensku.
Á seinustu árum hefur verið unnið að því að gera allar námsleiðirnar þrjár, sem lýst verður nánar hér að neðan, að raunverulegum valkosti fyrir nemendur sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins enda er um mikið hagsmunamál að ræða fyrir hinar dreifðu byggðir. Hagnýta námið fyrir byrjendur hefur um árabil verið kennt í bæði stað- og fjarnámi og var námsleiðin Íslenskustoð frá upphafi kennd í bæði stað- og fjarnámi. Framboð fjarnáms í BA-námi hefur einnig aukist með árunum og næsta haust verður boðið upp á fjarnám á þriðja ári BA-námsins líkt og verið hefur á fyrsta og öðru ári. Þar með verður hægt að ljúka öllum námsleiðunum í fjarnámi.
Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám
Hagnýtt námí íslensku sem öðru máli er skipulagt sem eins árs nám sem lýkur með diplómagráðu. Einnig er mögulegt að dreifa náminu á lengri tíma sem hentar sérstaklega fólki sem hyggst taka námið samhliða vinnu. Í náminu er byggð upp hagnýt grunnþekking á íslensku máli: málkerfi, orðaforða, skilningi og tjáningu en nemendur geta einnig valið sér námskeið um íslenska menningu sem hluta af náminu. Þessi leið er ætluð byrjendum í málinu, bæði þeim sem vilja búa sig undir frekara nám í íslensku sem öðru máli og þeim sem vilja bæta færni sína í íslensku almennt.
Inntökuskilyrði eru erlent ígildi íslensks stúdentsprófs og færni í íslensku á stigi A1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Að loknu námi hafa nemendur að jafnaði náð A2 færni í málinu.
Íslenskustoð
Íslenskustoð er grunndiplóma í íslensku sem öðru máli. Náminu er ætlað að koma nemendum á stig B1–B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum þannig að þeir séu í stakk búnir til að stunda annað háskólanám á íslensku. Gert er ráð fyrir að nemendur ljúki náminu á tveimur árum og geti þannig tekið stök námskeið í öðru háskólanámi samhliða eða stundað námið með vinnu. Á öðru ári velja nemendur sér kjörsvið. Kjörsviðið Menntavísindi er ætlað fólki sem vill sérhæfa sig í menntavísindum eða starfar nú þegar í skólum eða frístundastarfi. Kjörsviðið Almennt háskólanám er ætlað fólki sem ýmist hyggur á háskólanám á íslensku eða vill styrkja stöðu sína í íslensku samfélagi.
Inntökuskilyrði eru erlent ígildi íslensks stúdentsprófs og færni í íslensku á stigi A2+ samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Væntanleg færni í íslensku við námslok er á stigi B1–B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Íslenska sem annað mál, BA-nám
BA-námið í íslensku sem öðru máli er bæði almennt fræðilegt nám um íslenska tungu, bókmenntir og sögu Íslands og tungumálanám þar sem áhersla er lögð á að þjálfa ritun, dýpka lesskilning og auka færni í munnlegum samskiptum á íslensku. Þessi námsleið er einkum ætluð þeim sem hafa fræðilegan áhuga á íslensku máli jafnhliða því að vilja öðlast þjálfun í færniþáttum málsins. BA-námsleiðin er kennd sem aðalgrein (180 eða 120 einingar) og aukagrein (60 einingar). 120 eininga aðalgrein er tekin á móti aukagrein að vali nemanda.
Inntökuskilyrði eru erlent ígildi íslensks stúdentsprófs og færni í íslensku á stigi A2+ samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Væntanleg færni í íslensku að loknu fyrsta námsári er að lágmarki B1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum og að loknu öðru námsári að lágmarki B2. Færni að loknu þriðja námsári er yfirleitt B2–C1 eða hærra, en fer eftir nemanda og vali á námskeiðum.
Fjarnám í íslensku sem öðru máli
Fjarnám í íslensku sem öðru máli fer þannig fram að nemendur mæta í tíma samkvæmt stundatöflu í gegnum fjarfundarbúnað. Í tímum fer kennsla meðal annars fram í fyrirlestra- og umræðuformi en einnig eru verkefni unnin í tímum. Ekki eru eiginlegar staðlotur en fjarnemar þreyta miðmisseris- og lokapróf á staðnum við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólasetur Vestfjarða eða á öðrum viðurkenndum prófstöðum.
Fjarnám í hagnýta náminu hefur verið skipulagt svo að kennsla fer fram fjóra daga vikunnar (miðað við fullt nám) og geta nemendur að jafnaði valið milli morgunhóps (08.20–09.50) og síðdegishóps (16.40–18.10). Sama fyrirkomulag hefur verið á kennslu í Íslenskustoð. Á fyrsta ári í BA-náminu er kennsla að jafnaði mánudaga til fimmtudaga frá 08.20–13.10 en á öðru og þriðja ári er kennsla frá 08.20–16.30, eftir því hvaða námskeið nemandi velur sér.
Eins og áður kom fram verður bætt við fjarnámsvalkosti á þriðja og síðasta ári BA-námsins í haust. Með þeirri viðbót er íslenskum annarsmálshöfum – óháð staðsetningu á landinu – í fyrsta sinn gert kleift að stunda háskólanám í íslensku sem öðru máli sem spannar allt frá því að hljóta grunnfærni í málinu til þess að verða fullfær um að taka þátt í íslensku samfélagi á íslensku, hvort sem er í daglegu lífi, störfum eða frekara námi.
Umsóknarfrestur um nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands er til 20. maí.
Mynd
Með leyfi.



