Áhrif skáldverka Halldórs Laxness á íslenska nafnahefð 


Áhrif Halldórs Laxness á íslenska tungu og menningu birtast með margvíslegum hætti. Einn þáttur þeirra, sem minna hefur verið fjallað um, er hvernig nöfn og heiti úr verkum hans hafa ratað inn í íslenska nafnahefð og jafnvel öðlast sjálfstætt líf utan bókmenntanna. Sum persónunöfn virðast hafa orðið til í verkum hans eða a.m.k. fyrst náð fótfestu sem eiginnöfn í kjölfar útgáfu þeirra. Önnur voru til áður en kunna að hafa fengið aukna útbreiðslu fyrir áhrif frá þekktum sögupersónum. Þá hafa nöfn og bókatitlar Laxness verið nýttir á ýmsum öðrum sviðum, svo sem í fyrirtækjanöfnum, götuheitum, tónlist og dýranöfnum. 

Mannanöfn 

Tengsl mannanafna við verk Laxness eru misgreinileg. Stundum liggur fyrir frásögn um að Halldór hafi sjálfur stungið upp á nafni eða að nafn hafi verið sótt í verk hans. Í öðrum tilvikum þarf að ráða í tengslin út frá því hvenær nöfnin komust í notkun eða tóku að breiðast út. Við mat á áhrifunum þarf jafnframt að taka tillit til eldri notkunar nafnanna og almennra breytinga á nafnavali. 

Um kvenmannsnafnið Blær er til frásögn af beinum áhrifum Halldórs á nafngjöf. Elsta þekkta dæmið um Blær sem karlmannsnafn er frá 1925 en í Brekkukotsannál ber stúlka nafnið. Í viðtali í Morgunblaðinu árið 1994 greinir kona, fædd 1973, frá því að hún hafi fengið nafnið Blær að tillögu Halldórs. Móðir hennar hafði leitað til Halldórs eftir hugmynd að nafni og að hann hafi stakk upp á nafninu Blær. Nafnið var þó ekki samþykkt sem kvenmannsnafn á mannanafnaskrá fyrr en árið 2013. Síðan hefur það náð talsverðri útbreiðslu og er nú borið af körlum, konum og kvárum. 

Sjaldgæf nafnasamsetning getur einnig bent til beinna tengsla við tiltekið verk. Aðalpersóna Vefarans mikla frá Kasmír, sem kom út 1927, heitir Steinn Elliði. Nafnið Elliði var mjög sjaldgæft fyrir útkomu sögunnar og þeir elstu sem báru nafnið tengdust Mosfellssveit þar sem Halldór bjó síðar. Það vekur spurningu um hvort hann kunni að hafa þekkt nafnið þaðan. Hvað sem uppruna nafns sögupersónunnar líður bera tveir einstaklingar nafnasamsetninguna Steinn Elliði. Sú sérstaka samsvörun bendir sterklega til þess að nöfn þeirra hafi verið sótt í verkið. 

Í tilviki Uglu vekur tímasetning upptöku nafnsins einkum athygli. Ugla er ein af aðalpersónum Atómstöðvarinnar sem kom út árið 1948. Kvikmynd eftir sögunni var frumsýnd árið 1984 og tveimur árum síðar er nafnið fyrst notað sem eiginnafn. Þessi tímasetning bendir til þess að kvikmyndin kunni að hafa átt þátt í því að nafnið komst í notkun. Nú bera 37 konur nafnið, 23 sem fyrsta eiginnafn og 14 sem annað eiginnafn. 

Myndir 1—2: Fjöldi þeirra sem bera nafnið Ugla sem fyrsta eiginnafn (23) til vinstri og annað eiginnafn (14) til hægri. Af myndunum má sjá að nafnið Ugla hefur breiðst út jafnt og þétt á síðustu áratugum 

Í skáldsögunni Kristnihaldi undir Jökli, sem kom út árið 1968, kemur fyrir persónan Úa en það er stytting á nafni hinnar dularfullu Guðrúnar Sæmundsdóttur frá Neðratraðarkoti. Nafnið Úa er enn fátítt en hefur þó breiðst út á síðustu áratugum. Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands bera 22 konur nafnið og er elsti skráði nafnberinn fæddur árið 1976. Líkt og með Uglu kemur elsta þekkta dæmið um nafnið sem eiginnafn því fram eftir útkomu skáldsögunnar. 

Salka og Valka úr Sölku Völku eiga sér annars konar sögu. Þar eru þau styttingar á nöfnunum Salvör og Valgerður. Bæði nöfnin voru þekkt sem gælunöfn áður en skáldsagan kom út á árunum 1931–1932 og dæmi um þau eru raunar mun eldri. Sem sjálfstætt eiginnafn er Salka hins vegar tiltölulega ungt. Elsta dæmið er frá 1974 og nú bera rúmlega 300 konur nafnið, ýmist sem fyrra eða síðara eiginnafn. Valka hefur aftur á móti lítið breiðst út og aðeins fjórar konur bera nafnið. Þótt bæði nöfnin séu tengd sama verki hafa þau hlotið mjög ólíka útbreiðslu sem sjálfstæð eiginnöfn.  

Í öðrum tilvik, um er erfiðara að meta áhrif Laxness þar sem nöfnin voru fyrir í íslenskri nafnahefð. Ásta Sóllilja stjúpdóttir Bjarts í Sjálfstæðu fólki, er gott dæmi. Tvínefnið var til áður en skáldsagan kom út 1934–1935 og elsti þekkti nafnberinn er kona fædd 1892 á Vestfjörðum. Hugsanlegt er því að Halldór hafi sjálfur sótt nafnið þangað. Eftir útkomu Sjálfstæðs fólks fjölgaði þó nafnberum og má ætla að hin þekkta bókmenntapersóna hafi stuðlað að útbreiðslu nafnsins.   

Snæfríður á sér enn lengri sögu. Nafnið er þekkt úr fornbókmenntum og fornbréfum en var lítið notað á fyrri hluta 20. aldar. Á árunum 1921–1950 fengu aðeins fjórar stúlkur nafnið. Nú ber hins vegar 91 kona nafnið Snæfríður. Ekki er hægt að fullyrða um orsakasamband en persónan Snæfríður Íslandsól í Íslandsklukkunni kann að hafa stuðlað að aukinni útbreiðslu þess. Þess má einnig geta að sótt var um nafnið Íslandssól til mannanafnanefndar árið 2008 en því var hafnað. 

Bjartur, nafn aðalpersónunnar í Sjálfstæðu fólki, var einnig til fyrir útkomu sögunnar en var þá mjög sjaldgæft. Aðeins einn Bjartur er skráður í manntalinu 1910. Nafnið hefur orðið mun algengara frá því um 1990. Skáldsagan kann að hafa haft áhrif á útbreiðslu þess en á sama tíma hefur kvenmannsnafnið Björt einnig orðið algengara. Sú þróun bendir til þess að merking nafnsins geti líka skipt máli. Undanfarin ár hafa fleiri nöfn sem vísa til birtu komið fram, svo sem Birtingur, Birtir, Glóa og Skær. Á sama tíma hafa komið fram nöfn sem vísa til myrkurs eða skugga, svo sem Dimma, Myrkva, Rökkvi og Skuggi. 

Önnur notkun nafna úr verkum Laxness  

Fyrir utan mannanöfn má einnig finna ýmis heiti sem tengjast verkum Halldórs Laxness eða kunna að vera sótt í þau. Heiti fyrirtækja, félaga, verkefna og vara eru stundum samhljóða bókatitlum hans þótt ekki sé alltaf ljóst hvort um beina vísun sé að ræða. Atómstöðin hefur verið heiti auglýsingastofu, Heimsljós heiti jógastöðvar og ljósabúðar og Paradísarheimt heiti bæði fuglahótels og skógræktarverkefnis. Heitið Gerpla hefur meðal annars verið notað um fimleikafélag, saumastofu og sjoppu og einnig sem vöruheiti. 

Mynd 3: Merki auglýsingastofunnar Atómstöðin sem stofnuð var árið 1993.

Nafnið Salka hefur einnig verið notað með fjölbreyttum hætti. Það kemur fyrir í heitum fiskmiðlunar á Dalvík, kvennakórs og veitingastaðar á Húsavík. Í Reykjavík hefur veitingastaður borið heitið Salka Valka. Það hefur einnig verið notað um hvalaskoðunarfyrirtæki, bókaforlag og tískuvöruverslun í Vestmannaeyjum. Dæmi um heitið Valka eru færri en eitt þeirra er hátæknifyrirtækið Valka sem framleiðir búnað fyrir fiskvinnslu. 

Ekki er þó alltaf hægt að fullyrða að þessi heiti séu sótt til verka Laxness. Nöfn á borð við Gerplu, Sölku og Völku eru stutt og lipur og kunna því einnig að hafa verið valin sem heiti fyrirtækja og vara vegna forms síns eða hljóms. 

Skýr dæmi um áhrif skáldverka Laxness á nafngiftir er að finna í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Við skipulag hverfisins var ákveðið að sækja götuheiti til verka hans. Aðalgöturnar tvær, Gerplustræti og Vefarastræti, eru kenndar við skáldsögurnar Gerplu og Vefarann mikla frá Kasmír. Aðrar götur í hverfinu bera heiti sem sótt eru til kvenpersóna úr verkum hans, meðal annars Sölku, Uglu og Úu. 

Myndir 4—5: Götuskilti í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. 

Sum nöfn úr verkum Laxness eru einnig notuð sem dýranöfn. Á netinu má til dæmis finna hunda, ketti, kvígur og hesta sem bera nafnið Salka og hesta sem heita Ljósvíkingur. Árið 1994 auglýsti hestaleigan á Búðum meðal annars tvo hesta sem báru nöfn úr Kristnihaldi undir Jökli, Jón Prímus og Goodman Sýngman. Tengslin við sögupersónurnar koma einnig fram í lýsingum auglýsingarinnar á hestunum. Goodman Sýngman er til dæmis lýst sem léttlyndum glaumgosa sem fer sínar eigin leiðir og getur verið heldur varasamur. Hesturinn Jón Prímus var hins vegar sérlundaður en ljúfþýður töltari, reistur og flottur. 

Mynd 6: Auglýsing hestaleigunnar á Búðum. 

Í íslensku tónlistarlífi má finna nokkrar vísanir í Atómstöðina. Hljómsveitin Atómstöðin sótti nafn sitt í skáldsöguna og heiti plötu Maus, Allar kenningar heimsins og ögn meira, er sótt í kaflaheiti hennar. Hljómsveitin 200.000 naglbítar frá Akureyri dregur nafn sitt af Tvö hundruð þúsund naglbítum, spilltum athafnamanni og stjórnmálamanni í sögunni. Hljómsveitin Mínus vísar hins vegar til skáldsins sjálfs með plötutitlinum Halldór Laxness. 

Mynd 7: Hljómsveitin Atómstöðin, sem kom fram á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi árið 2017.

Nöfn og vísanir utan bókmenntanna 

Í Kristnihaldi undir Jökli ber Hnallþóra fram sautján sortir af kökum. Nafn hennar hefur öðlast sjálfstætt líf í íslensku þar sem orðið hnallþóra er haft um stóra og glæsilega tertu. Orðalagið „sautján sortir“ er jafnframt notað um ríkulegt kökuúrval og hefur orðið að heiti kökufyrirtækisins 17 sortir. 

Persónur úr verkum Laxness verða líka að viðmiðum í almennri samfélagsumræðu. Stundum er vísað til Bjarts í Sumarhúsum þegar rætt er um sjálfstæði, einþykkni og þrautseigju, ýmist í aðdáun eða með gagnrýni. Í þingræðu árið 2009 vísaði Margrét Tryggvadóttir til dæmis til „margra Bjarta í Sumarhúsum“ sem hefðu lagt á sig mikla vinnu og skuldir til að láta drauminn um eigið húsnæði rætast. Vísunin tengir þannig samtímaumræðu um húsnæði og lífskjör við baráttu skáldsögupersónunnar fyrir sjálfstæði. 

Þessi dæmi sýna, ásamt þeim sem áður hafa verið rakin, hvernig nöfn, heiti og persónur úr verkum Halldórs Laxness hafa öðlast líf utan bókmenntanna. Tengslin við verkin eru margþætt og misjafnlega skýr. Þegar mannanöfn voru þekkt fyrir útkomu verkanna geta tímasetning og breytingar á útbreiðslu þeirra gefið vísbendingar um hugsanleg áhrif. Í götuheitum Helgafellshverfis og hestanöfnunum á Búðum var hins vegar beinlínis sótt til verkanna. Með tímanum geta slík nöfn og vísanir orðið svo samofin almennri málnotkun að tengslin við bókmenntalegan uppruna þeirra verða óljós. Þannig er hægt að biðja um sneið af hnallþóru án þess að hafa lesið Kristnihald undir Jökli. 

Pistillinn byggist á fyrirlestri sem haldinn var í Eddu sumardaginn fyrsta 2026. 

Tölur um fjölda nafnbera í greininni byggjast á gögnum Hagstofunnar um mannfjölda 1. janúar 2025. 

Myndir

Forsíðumynd: Gljúfrasteinn.is.

1—2: Hagstofa Íslands.

3: Morgunblaðið, 24. mars 1995, bls. 48.

4—5: Myndir eftir höfund.

6: Morgunblaðið, 10. júní 1994, bls. 3.

7: Facebook-síða Atómstöðvarinnar.

Höfundur

Ágústa Þorbergsdóttir starfar á íslenskusviði á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, er ritstjóri Íðorðabankans og starfar með fjölmörgum orðanefndum. Hún ritstýrir einnig Nýyrðavefnum og annast almenna málfarsráðgjöf.

Scroll to Top