Epli [komma] appelsínur [oxfordkomma?] og bananar 


Þessi pistill fjallar um kommusetningu í ensku og íslensku þegar talin eru upp þrjú eða fleiri atriði. Lítum á eftirfarandi dæmi: 

(1) a. I bought apples, oranges and bananas. 

b. I could buy apples, oranges or bananas. 

c. Ég keypti epli, appelsínur og banana. 

d. Ég gæti keypt epli, appelsínur eða banana. 

e. I bought apples, oranges, and bananas. 

f. I could buy apples, oranges, or bananas. 

Sömu reglum er fylgt í íslensku og ensku í dæmum (1)a-d. Dæmi (1)e-f sýna annan valkost, svonefnda oxfordkommu, sem getur staðið til boða í ensku ritmáli. Það samræmist ekki íslenskum ritreglum þar sem kveðið er á um að hafa kommu „í upptalningu nema þar sem notaðar eru samtengingar“. Dæmin í (2)a–d eru sótt þangað.  

(2) a. Sigrún, Jón, Aron og Emilía eru systkin. 

b. Á morgun er landafræði, enska, stærðfræði og danska. 

c. Í veislunni voru sniglar í forrétt, nautakjöt í aðalrétt og ís í eftirrétt. 

d. Á morgun er landafræði og enska og stærðfræði og danska. 

Í ensku er sem sagt hægt að fara tvær leiðir, með eða án oxfordkommu. Kostur við oxfordkommu er að með henni má gefa ótvírætt til kynna hvað á saman í upptalningu. Á móti er bent á að í mjög mörgum tilvikum er það ekkert vafamál þannig að oxfordkomman verður umfröm ef hún er notuð ásamt samtengingu.  

Komma á undan samtengingu við aftasta lið upptalningar er hér kölluð oxfordkomma en á ensku nefnist hún ýmist Oxford comma, Harvard comma eða serial comma. Heitið Oxford comma er dregið af nafni háskólaforlagsins Oxford University Press. Annars eru hugrenningatengslin við Bretland dálítið villandi. Staðreyndin er sú að það er fremur í bandarískum ritreglum að mælt er ákveðið fyrir um þessa kommureglu. Hennar er t.d. afdráttarlaust krafist í Chicago Manual of Style og hjá ýmsum stórum vísindaforlögum. Það á hins vegar ekki endilega við um bandarískt ritmál almennt. Stórblöð á borð við New York Times hafa ekki notað oxfordkommu nema þar sem hún er beinlínis nauðsynleg til að koma í veg fyrir misskilning. Hún gegnir þá hlutverki skýrleikakommu en það er hugtak sem Jóhannes B. Sigtryggsson notar í Íslenskri réttritun um það heimildarákvæði í grein 21.1.3 í íslenskum ritreglum að leyfilegt er „að setja kommu milli setninga ef nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir misskilning“. 

Í ritreglum The Economist er ekki gert ráð fyrir oxfordkommu en víkja skal frá meginreglunni ef eitthvert atriði í upptalningunni inniheldur samtenginguna and. Fyrri setningin í (3) samræmist þannig meginreglunni en í seinni setningunni sést undantekningartilfelli.  

(3) The doctor suggested an aspirin, half a grapefruit and a cup of broth. But he ordered scrambled eggs, whisky and soda, and a selection from the trolley.

Í breskri ensku heyrir oxfordkomma á heildina litið fremur til undantekninga. Þar eru efstar á blaði ritreglur áðurnefnds háskólaforlags, Oxford University Press. Sjá mynd 1. Regla forlagsins um kommusetningu í upptalningu er afdráttarlaus. Henni skal fylgt jafnvel þar sem engin hætta væri á misskilningi þótt kommunni væri sleppt.  

Mynd 1. Fyrirmæli í leiðbeiningum Oxford University Press um kommu á undan samtengingu við aftasta lið í upptalningu. 

Enda þótt háskólaforlagið fylgi oxfordkommunni strangt eftir á það ekki við um Oxford-háskóla sjálfan. Í ritreglum University of Oxford er þvert á móti tekið sérstaklega fram að ekki skuli hafa kommu milli næstsíðasta atriðis í upptalningu og eftirfarandi samtengingar (and/or). Í inngangi að ritreglum háskólans segir að markmið þeirra sé að leiðbeina um samræmda ritun og snið á þeim gögnum sem starfsmenn senda frá sér í nafni stofnunarinnar. Tekið er fram að reglurnar séu ekki ætlaðar öðrum aðilum eða almenningi og sérstaklega er áréttað að þeim sé ekki stefnt gegn ritreglum Oxford University Press.  

Þótt meginregla Oxford-háskóla sé kommuleysi ber samt sem áður að grípa til oxfordkommu til að hindra hugsanlegan misskilning í upptalningu. Sjá mynd 2.  

Mynd 2. Leiðbeiningar University of Oxford um kommusetningu í upptalningu. 

Neðsta dæminu á mynd 2 (bannmerkt með rauðum krossi) er ætlað að sýna undantekningartilvik þar sem betra væri að hafa oxfordkommu. Það þarf talsvert hugmyndaflug til að gera ráð fyrir þeim möguleika að móðir Teresa og páfinn hefðu átt barn saman en með því að setja kommu á eftir Mother Theresa yrði a.m.k. girt fyrir þann rugling (eða útúrsnúning).     

Að lokum: Af hverju hefur verið ritað lítið o í upphafi heitisins oxfordkomma í þessum pistli? 

Hér er komið að dálítið vandasömum þætti í frágangi íslensks ritmáls, þ.e. hvenær rita skuli lítinn upphafsstaf (vínarbrauð) og hvenær stóran (Vínarsáttmálinn) í samnöfnum sem dregin eru af sérnöfnum. Meginreglan er að tegundarheiti eru rituð með litlum upphafsstaf. Orðið oxfordkomma er í raun og veru heiti á einni „tegund“ kommusetningarreglna. Í þessu sambandi má minna á hjálparreglu sem gefin er í grein 1.3.3.1 í Ritreglum, sjá mynd 3. Hana má hafa til leiðbeiningar við að greina tegundarheiti. Ef spurt er: „Hvers konar kommuregla er þetta?“ væri svarið: „Þetta er oxfordkomma.“ 

Mynd 3. Hjálparregla í grein 1.3.3.1 í Ritreglum um ritun samnafna sem dregin eru af sérnöfnum. 

Heimildir 

Ali, Bahadar. 2026. Oxford Comma or No Oxford Comma: Which Style Is Correct? Grammardrive.com. Sótt í nóvember 2026. 

Caulfield, Jack. 2023. Serial Comma. Rules, Examples & Definition. Scribbr. Sótt í nóvember 2026. 

Chicago Manual of Style. The Essential Guide for Writers, Editors, and Publishers. 15. útgáfa. 2003. The University of Chicago Press. 

Guide for authors and editors. 2014. Oxford University Press, Academic Division. Sótt í nóvember 2026.  

Jóhannes B. Sigtryggsson. 2021. Íslensk réttritun. Sótt í nóvember 2026. 

Ritreglur. Auglýsingar mennta- og menningarmálaráðuneytis nr. 695/2016 og 800/2018 með leiðréttingum. Sótt í nóvember 2026. 

Serial Comma. 2019. APA Style. Style and Grammar Guidelines. Punctuation. Sótt í nóvember 2026. 

Serial Commas and Serial Semicolons. 2026. MLA Style Center. Advice from the Editors. Sótt í nóvember 2026. 

The Economist Style Guide. 2005. Sótt í nóvember 2026. 

University of Oxford Style Guide. 2014. Sótt í nóvember 2026. 

Mynd

Наталья Маркина. Pexels.com.

Höfundur

Dr. Ari Páll Kristinsson er rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hann hefur m.a. rannsakað málstefnu, breytileg málsnið og eðli og áhrif málstýringar og vísandi málfræði.

Scroll to Top